Uppþvottavél, Siemens, iQ500
Stál.
Orkuflokkur C.
Raforkunotkun miðað við Eco kerfi: 75 kwst. (100 þvottar).
Vatnsnotkun miðað við Eco kerfi: 9,5 lítrar á hvern þvott.
14 manna.
Hljóð: 42 dB (re 1 pW).
Hljóð á hljóðlátu kerfi: 40 dB (A) re 1 pW.
Home Connect: Wi-Fi.
Átta kerfi: Öflugt 70° C, sjálfvirkt kerfi 45-65° C, Eco 50° C, klukkustundarkerfi 60° C, hraðkerfi 45° C, glitrandi hreint (brilliantShine), hljóðlátt kerfi og eftirlætiskerfi.
Fjórar séraðgerðir: Home Connect, skínandi þurrt, tímastytting þvottakerfa („varioSpeed Plus“) og kraftþvottur á neðri grind.
Forskolun.
Hreinsikerfi til að þrífa vélina.
Tímaseinkun í allt að 24 klst.
Hnífaparaskúffa.
Niðurfellanlegar diskaraðir í neðri grind.
Hæðarstillanleg efri grind, þrjár stillingar.
Ljós inni í vél (emotionLight).
Sérstakt hólf fyrir þvottatöflur.
Zeolith®-þurrkun.
Skynjarar: Vatnsskynjari sem mælir óhreinindastig vatnsins („aquaSensor“) og magnskynjari.
iQdrive: Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor.
„aquaStop®“-flæðivörn.
Barnalæsing, stjórnborð.
Mál (h x b x d): 81,5 x 59,8 x 57,3 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 81,5 - 87,5 x 60 x 55 sm.
Home Connect-appið gerir þér kleift að tengjast þráðlaust heimilistækjum frá Siemens á auðveldan og þægilegan hátt hvort sem þú ert í vinnunni, á ferðalagi eða situr í sófanum heima.
Með Home Connect-appinu eru Siemens heimilistækin aldrei lengra frá þér en snjallsímimn eða spjaldtölvan. Kveiktu á ofninum þegar þú ert á leiðinni heim, athugaðu hvort þvottavélin er búin að þvo eða fáðu dásamlegar uppskriftir að kvöldmatnum inni á recipeWorld.
Home Connect-appið er fyrir þig og aðra þá sem þrá lausnir sem einfalda lífið.
aquaStop kemur í veg fyrir vatnstjón, bæði af völdum leka í vélinni og leka frá slöngu sem tengist vélinni. Öryggið er tryggt allan endingartíma vélarinnar.
Þvottatöflur leysast hratt og örugglega upp í hólfinu. Vélin nýtir sér úðarakerfið til að dreifa jafnt úr þvottaefninu og tryggir þannig góðan þvott alls staðar í vélinni.
Tvö LED-ljós í lofti vélarinnar varpa þægilegri blárri birtu inn í vélina og lýsa upp leirtauið. Ljósið kviknar sjálfkrafa þegar vélardyrnar eru opnaðar og slokknar þegar dyrnar lokast.
Vélin er knúin áfram af hinum byltingarkennda iQdrive-mótor sem er hljóðlátur, hraður og skilvirkur. iQdrive-mótorinn er núningsfrír segulmótor sem skilar betri árangri með minni orkunotkun. Kolalaus og með 10 ára ábyrgð.
Hæð efri grindarinnar má stilla á þrjá vegu, jafnvel þó að hún sé full af leirtaui. Þetta auðveldar manni að fylla og tæma vélina, sérstaklega þegar koma á fyrir pottum og pönnum.
Hnífaparaskúffunni er komið fyrir efst í vélinni. Lögun hennar gerir ráð fyrir að í hana fari ekki eingöngu hnífapör heldur einnig espressóbollar og ýmis stærri eldhúsáhöld, t.d. skurðhnífar, spaðar og salatskeiðar.
Með því að þrýsta á varioSpeed Plus-hnappinn má stytta þvottatímann um allt að 66%. Styttur tími birtist þá á skjá stjórnborðsins. Á hvorki við um forskolun né hraðkerfi.
Zeolith®-þurrkun nýtir einstaka eiginleika seólíta til að draga í sig raka og skila varmaorku tilbaka. Með því verður innihald vélarinnar skraufþurrt og þurrkunin um leið umhverfisvænni.